RÚN

EDINBORG

14. OKTÓBER - 17. OKTÓBER

2026

ALMENNT UM FERÐINA

Sælir kæru bræður og systur í Rún, Mælifelli, Vöku, Draupni og Dröfn.


Búið er að skipuleggja ferð til Edinborgar að undirlagi Rúnarbræðra og og eru ferðadagar 14. Október til 17. Október 2026. Eru ungbræður sérstaklega hvattir til að nýta sér þetta einstaka tækifæri til að kynnast ásamt systrum sínum öðrum bræðrum og systrum utan starfsins og auka þau persónulegu tengsl sem stúkan okkar býr svo ríkulega að.


Þá er ferðin einstakt tækifæri fyrir brottflutta bræður og systur til að endurnýja gömul og góð kynni og er það von okkar að sjá sem flesta syðra taka þátt í þessari góðu ferð.


Flogið er með leiguvél sem byrjar flugið í Keflavík með brottför snemma morguns og þaðan haldið til Akureyrar og loks áfram til Edinborgar. Við komu á flugvöll ytra er rúta sem keyrir okkur á okkar hótel sem er Mount Royal Hotel Edinburgh 4* en það er vinsælt hótel af íslenskum bræðrum í gegnum tíðina, alveg sérlega vel staðsett á Princess Street sem er aðalgatan í borginni og hefur allt hótelið nýlega verið tekið í gegn.


Verið að horfa á heimsókn til Rosslyn kapellu og heimsókn í stúkuhúsið sem er rétt þar hjá með léttum veitingum seinni partinn þegar við komum út þann 14. október. Sama dag er stefnt á smá rútuferð um borgina með enskumælandi leiðsögn. Ferðanefndin á eftir að fá kostnað vegna þessa sem verður birtur sérstaklega síðar. Heimsókn í Frímúrarahúsið er farin fótgangandi frá hóteli.


Á dagskrá er að heimsækja Frímúrarahúsið ytra og verður það auglýst sérstaklega síðar en stefnt að því að sú ferð verði að morgni 15. október sem er sami dagur og Gala kvöldið verður. Boðið verður upp á rútuakstur frá hóteli að húsinu en þátttakendur koma sér sjálfir tilbaka á hótel. Beðið er eftir formlegri staðfestingu Grand Lodge of Scotland fyrir þessari heimild til heimsóknar.


(Gala) Veislukvöldið er svo fyrirhugað sama dag -15. Október- og verður það auglýst sérstaklega ásamt kostnaði vegna þess.


Bræður munu eiga þess kost að fara á frímúrarafund föstudaginn 16. Október á 1° gráðu hjá stúkunni Lodge Coupar o' Fife 19 sem er í rétt rúmlega klukkustundar akstursfjarlægð frá hótelinu. Skráning á fundinn verður rafræn og tilkynnt síðar ásamt kostnaði vegna rútuaksturs en léttar veitingar að fundi loknum eru í boði okkar skosku bræðra. Þá er jafnframt verið að skoða uppsetningu á annan fund sem yrði þá á þriðju gráðu og hann þá haldinn hjá annarri stúku ytra sem á eftir að festa - verði fjöldi bræðra of mikill fyrir þann fund sem búið er að skipuleggja.


Meðan þeir funda er stefnt að því að skipuleggja sér kvöldverð fyrir Systur sem verður auglýst nánar síðar og koma þær upplýsingar ásamt kostnaði fram síðar en ferðanefndin á eftir að senda út frekari upplýsingar til þátttakenda eftir því sem undirbúningi miðar áfram með allar viðbætur.


Eru farþegar hvattir til að heimsækja þessa upplýsingasíðu síðar til að fylgjast með uppfærðum upplýsingum en lokaútgáfa ferðalýsingar og upplýsinga verður gefin út og send til allra þátttakenda skömmu áður en ferðin hefst.


Skráningarform fyrir ferðina má finna neðar á síðunni.

FERÐAKOSTNAÐUR

HVAÐ KOSTAR FERÐIN?

  • STANDARD QUEEN HERBERGI

    Verð per einstakling í tveggja manna herbergi | 196.724 kr.


    Verð fyrir eins manns herbergi | 234.974 kr.

  • STANDARD QUEEN HERBERGI MEÐ KASTALA ÚTSÝNI

    Verð per einstakling í tveggja manna herbergi | 203.354 kr.


    Verð fyrir eins manns herbergi | 253.334 kr.

  • KING SUPERIOR HERBERGI MEÐ KASTALA ÚTSÝNI

    Verð per einstakling í tveggja manna herbergi | 210.494 kr.


    Verð fyrir eins manns herbergi | 266.594 kr

  • STAÐFESTINGARGJALD

    Staðfestingargjald fyrir hvern farþega eru krónur 50.000 kr. eða samtals 100.000 kr. fyrir hjón/par.


    Greiðsluseðlar vegna staðfestingargjalds verða sendir út síðar.

AÐRAR UPPLÝSINGAR

  • HVAÐ ER INNIFALIÐ?

    Flug ásamt öllum sköttum og gjöldum í beinu flugi frá Akureyri eða Keflavík til Edinborgar og heim aftur.

    Rúta til og frá flugvelli ytra.

    Gisting í þrjár nætur á Mount Royal Hotel Edinburgh 4★ ásamt morgunverði.

    Aðgangur að Frímúrarahúsinu í Edinborg ásamt rútuakstri frá hóteli að húsinu. [formleg staðfesting á heimild til heimsóknar er í vinnslu]

    Frímúrarafundurinn með léttum veitingum [utan aksturs og samskots].

  • HVAÐ ER EKKI INNIFALIÐ?

    Skoðunarferð með akstri um borgina.


    Skoðunarferð til Rosslyn kapellunnar ásamt léttum veitingum í stúkuhúsinu í Rosslyn.


    Rútuakstur og samskot á fundi.


    Galakvöld bræðra og systra.


    Systrakvöldverður.

  • GREIÐSLUFYRIRKOMULAG

    Eftir að ferð hefur verið bókuð er sendur greiðsluseðill í heimabanka fyrir staðfestingargjaldi ferðar. Hægt er að greiða ferð að fullu með staðfestingargjaldi, einn greiðsluseðill er þá sendur í heimabanka þess sem bókar ferðina fyrir heildarverði ferðar.


    Greiðsludreifing stendur þeim til boða sem vilja nýta sér hana. Boðið er upp á vaxtalaus lán sem hægt er að dreifa niður á allt frá 2-6 gjalddaga auk þess sem bræðrum stendur til boða að nýta sér hefðbundna raðgreiðsludreifingu með allt að 36 mánaðarlegum afborgunum.


    Kostnaður við greiðsludreifingu er breytilegur eftir því hvaða útfærsla á greiðsludreifingu er valin. Staðfestingargjaldið sem innt er af hendi við skráningu í ferð kemur til frádráttar upphæðar sem fer í greiðsludreifingu. Athugið að ekki er hægt að skipta staðfestingargjaldi.


    Þeir sem hafa hug á að nýta sér þessa þjónustu eru beðnir um að senda tölvupóst með öllum nauðsynlegum upplýsingum.


    Netfang | braedraferdir@atlantistravel.is

SKRÁ MIG Í FERÐ

Contact Us

FERÐALÝSING

Hér er að finna ferðalýsingu bræðra- og systraferðar Rúnar til Edinborg
  • Dagur 1 | 14. Október

    Við hefjum ferð okkar með leiguflugi sem byrjar í Keflavík fyrir þá bræður og systur sem búa syðra. Flugnúmer verða birt síðar .


    Brottför frá Keflavík er klukkan 09:15 og komið til Akureyrar um 10:10.


    Brottför frá Akureyri er svo klukkan 11:00 og áætluð lending úti í Edinborg um klukkan 14:15.


    Við komu ytra bíða okkur rútur sem keyra okkur á hótelið okkar.


    Eftir að farþegar hafa innritað sig á herbergi og komið aftur niður í anddyri verður hópnum skipt í tvennt og þá fer fyrri hópurinn í skoðunarferð um borgina og þaðan ekið til Rosslyn kapellu sem er einstök kirkja með sögulega og mikla tengingu í okkur. Þar fáum við frímúrara sem fer með okkur um kirkjuna og segir okkur hennar sögu og með hvaða hætti hún tengist sögu frímúrara. Eftir skoðun þar er farið í stúkuhúsið hjá frímúrarastúkunni í Rosslyn þar sem við fáum léttar veitingar áður en ekið er aftur á hótelið.


    Seinni hópurinn leggur af stað á sama tíma og sá fyrri en byrjar sitt prógram í Rosslyn kapellu og klárar með skoðunarferðinni um borgina áður en haldið er á hótelið.


    ATH. Ferðanefndin getur þurft að færa til skoðunarferðir vegna fjölda, endanlegs komutíma til Edinborgar og flr. en nákvæm tímasetning og fyrirkomulag ásamt verði verður sent út til allra sem skrá sig í ferðina síðar.

  • Dagur 2 | 15. Október

    Í dag gefst þeim bræðrum og systrum sem það kjósa kostur á að fara í skoðunarferð um frímúrarahúsið í Edinborg og er þá lagt af stað klukkan 10:00 frá hótelinu og áætlað að skoðunarferðin taki í það heila um 2 klst. Farþegar sem fara í þessa ferð sjá sjálfir um að koma sér tilbaka á hótel en geta nýtt tækifærið og rölt aðeins um borgina áður en haldið er aftur heim á hótelið. Ferðanefndin á eftir að fá formlega staðfestingu á tímasetningu hjá frímúrarahúsinu ytra og lætur vita gerist þess þörf.


    Klukkan 18:00 eiga bræður og systur að vera klár í anddyri hótelsins en þá hefjum við okkar prógram fyrir Gala kvöldið okkar.


    Bræður klæði sig í kjólföt en séu í hvítu veisluvesti. Bræður eru minntir á að ekki skal bera nein einkenni, stigsmerki eða annað á þessu kvöldi. Systur klæðist ef mögulegt í kjól en ekki er gerð krafa um síðkjóla.


    (Gala) Veislukvöldið verður haldið á völdum stað ( upplýsingar og verð birt síðar ) og er ekið þangað í rútu. 


    Fordykkur við komu á veislustað.


    Vegleg dagskrá með þríréttaðri máltíð ásamt 1/2 drykkjarpakka en umfram drykki er hægt að kaupa sérstaklega og greiða með korti.


    Áætluð dagskrárlok eru klukkan 23:30.

  • Dagur 3 | 16. Október

    Frjáls dagur fram til klukkan 16:30 en þá eiga bræður að vera klárir í anddyri hótelsins til að fara af stað á frímúrarafund.


    Frímúrarafundurinn er  á 1°gráðu í stúkunni Lodge Coupar o' Fife 19 sem er í sirka 1,15 klst akstri frá hótelinu. Bræður klæðist líkt og á fyrstu gráðu fundi heima þ.m.t hattur og hanskar en sverð eru ekki leyfð með í fluginu út og stefnt að því að stúkan ytra leggi þau til ef hægt er. Standandi léttar veitingar í stað hefðbundinnar bróðurmáltíðar sem skoska stúkan býður upp á. Í samskoti til hinna bágstöddu gefur hver og einn eftir efni og aðstæðum. Við borðhald selur stúkan, skv hefð, lotterí miða en tekjur af því fara í viðhalds og framkvæmdarsjóð stúkunnar og kostar hver miði 1£ pund og almennt að brr. kaupi þá 5, 10, 15 eða flr miða. Bar verður við máltíð og bæði hægt að greiða þar með reiðufé eða korti. Gosdrykkir kosta um 1,5£ pund, bjór 3 - 3,5£ pund og sterkir drykkir svipað. Ferðanefndin hvetur brr. til þess að hafa með sér um 40£ - 50£ bresk pund til að eiga gott kvöld með allri þátttöku.


    Áætlaður komutími tilbaka af fundi á hótel er klukkan ~23:45.


    Kvöldverður systra


    Meðan bræður sækja fund og eiga stundir með okkar bræðrum í Skotlandi verður kvöldverður fyrir systur sem verið er að skipuleggja og upplýsingar vegna þess bætt við í þessa ferðalýsingu þegar fram í sækir. 

  • Dagur 4 | 17. Október

    Frjáls dagur fyrri part en farþegar þurfa að skila inn lyklum og ganga frá herbergjum fyrir klukkan 11:00 nema gestir hafi samið um annað við afgreiðslu hótelsins - athugið að hótelið tekur sérstaklega gjald fyrir það. Eftir að herbergi hefur verið skilað er hægt að setja töskur í viðeigandi geymslu sem hótel afgreiðslan sér um. Áætluð brottför frá hóteli á flugvöll er klukkan 17:00.


    Brottför frá Edinborg til Akureyrar er klukkan 19:30 og áætluð lending þar klukkan 20:45.


    Brottför frá Akureyri til Keflavíkur er svo klukkan 21:35 og áætlað að farþegar lendi í Keflavík klukkan 22:30.


    Vinsamlegast athugið að allir uppgefnir tímar eru birtir með fyrirvara og verður áætlunin uppfærð eftir því sem nær dregur.

FRÍMÚRARAFUNDUR

FRÍMÚRARA

FUNDUR

16. OKTÓBER

Frímúrarafundurinn er á 1°gráðu í stúkunni Lodge Coupar o' Fife 19 sem er í rúmlega klukkustundar akstursfjarlægð frá hótelinu.

Stúkan sem við sækjum heim er en elsta starfandi stúka Skotlands sem rekur sögu sína allt til ársins 1736 og starfar í húsinu þeirra sem var tekið í notkun árið 1811. Starfandi Stm. stúkunnar er br. William Duncan McCartney (Right Worshipful Master).


Bræður klæðist líkt og á fyrstu gráðu fundi heima þ.m.t hattur og hanskar en sverð eru ekki leyfð með í fluginu út og stefnt að því að stúkan ytra leggi þau til ef hægt er.


Standandi léttar veitingar í stað hefðbundinnar bróðurmáltíðar sem skoska stúkan býður upp á. Í samskoti til hinna bágstöddu gefur hver og einn eftir efni og aðstæðum. Við borðhald selur stúkan, skv. hefð happdrættismiða en tekjur af því fara í viðhalds- og framkvæmdarsjóð stúkunnar. Hver miði kostar 1£ pund og almennt að brr. kaupi þá 5, 10, 15 eða fleiri miða. Bar verður opinn með máltíð og hægt að greiða þar með reiðufé eða korti. Gosdrykkir kosta um 1,5£ pund, bjór 3-3,5£ pund og sterkir drykkir svipað. Ferðanefndin hvetur brr. til þess að hafa með sér um 40£ - 50£ pund til að eiga gott kvöld með allri þátttöku.

HÓTELIÐ

MOUNT ROYAL HOTEL EDINBURGH 4★

Mount Royal Hotel Edinburgh hótelið er staðsett við Princes Street götuna í Edinborg í göngufjarlægð frá mörgum helstu kennileitum borgarinnar eins og Waverley Station, Edinborgarkastala og the Royal Mile.


Á hótelinu er 24 klukkustunda móttaka, öryggishólf á öllum herbergjum, internet aðgangur, þvotta-/hreinsunarþjónusta, herbergisþjónusta, bar og veitingastaður.


Þetta hótel hefur í gegnum árin oft verið notað af íslenskum bræðrum og systrum sem hafa dvalið í Edinborg. Hótelið hefur verið endurnýjað að miklu leyti undanfarin ár.


TENGILIÐIR

Er eitthvað sem er óskýrt?

Smelltu á hnappinn hér fyrir neðan til að senda Bræðraferðum tölvupóst.