Farþegar í flugi til Edinborgar

Vinsamlegast athugið að flugi þínu til Edinborgar á morgun, 14. Október, hefur verið flýtt um klukkustund. Farþegar eru beðnir um að mæta á flugvöll 2½ klukkustund fyrir brottför þegar innritun opnar.


Brottfarartími frá Akureyri er klukkan 10:15.

Mæting 2½ klukkustund fyrir brottför.

EDINBORG

FRÁ AKUREYRI

14. Október - 17. Október 2026

Edinborg er borg sem gestir verða gjarnan ástfangnir af vegna þeirrar fjölbreytni sem hún býður gestum upp á. Kastalar og aðrar minjar frá miðöldum horfa yfir nútímalega borg smekkfulla af eftirminnilegum veitingastöðum og kaffihúsum, áhugaverðum og metnaðarfullum söfnum, spennandi sögulegum kennileitum og gamla bænum í hinum Georgíska byggingarstíl sem hann er þekktur fyrir.

Skoðunarferðir

Vinsamlegast athugið að lágmarksþáttaka þarf að nást til að verði af skoðunarferðum og takmarkaður fjöldi sæta laus í hverri ferð.

Gamli Bærinn & Edinborgarkastali


Verð

12.990kr.


Þessi skoðunarferð er í boði morguninn 15. Október og 16. Október.


  • Þessi skoðunarferð er um þrjár og hálf klukkustund.
  • Lagt er af stað frá hóteli klukkan 09:30.
  • Þessi skoðunarferð er fótgangandi.
  • Þessi skoðunarferð er í meðallagi krefjandi ganga.


Skrá Mig/Okkur

Höllin, Þingið & Saga Aðalsins


Verð

11.990kr.


Þessi skoðunarferð er í boði seinnipartinn 15. Október og 16. Október.


  • Þessi skoðunarferð er um þrjár klukkustundir.
  • Lagt er af stað frá hóteli klukkan 14:00.
  • Þessi skoðunarferð er fótgangandi.
  • Þessi skoðunarferð er ekki krefjandi ganga.


Skrá Mig/Okkur

Hótelið

MOUNT ROYAL HOTEL EDINBURGH 4★

Mount Royal Hotel Edinburgh hótelið er staðsett við Princes Street götuna í Edinborg í göngufjarlægð frá mörgum helstu kennileitum borgarinnar eins og Waverley Station, Edinborgarkastala og the Royal Mile.


Á hótelinu er 24 klukkustunda móttaka, öryggishólf á öllum herbergjum, internet aðgangur, þvotta-/hreinsunarþjónusta, herbergisþjónusta, bar og veitingastaður.


Þetta hótel hefur í gegnum árin oft verið notað af íslenskum ferðalöngum sem hafa dvalið í Edinborg.


Hótelið hefur verið endurnýjað að miklu leyti undanfarin ár.

Upplýsingar & Verð

  • Hvað kostar ferðin?

    Verð fyrir Standard einstaklingsherbergi |  234.974kr.


    Verð per gest í tveggja manna Standard Double herbergi | 196.724kr.


    Verð per gest í tveggja manna Standard Twin herbergi |  196.724kr.


    Verð fyrir Standard Queen einstaklingsherbergi með kastalaútsýni |  253.334kr.


    Verð per gest í tveggja manna Standard Queen herbergi með kastalaútsýni |  203.354kr.


    Twin = Tvö Rúm | Double = Tvíbreitt Rúm | Athugið að uppgefin verð eru per mann.

  • Hvað er innifalið?

    Flug ásamt öllum sköttum og gjöldum í beinu flugi frá Akureyri til Edinborgar og heim aftur.


    Rúta til og frá flugvelli ytra.


    Gisting í þrjár nætur á Mount Royal Hotel Edinburgh 4★ ásamt morgunverði.

  • Ferðaheimild

    Farþegar í ferðina eru beðnir um að ganga frá ferðaheimild til Bretlands tímanlega svo hægt sé að bregðast við þurfi þess.

    Upplýsingar
  • Staðfestingargjald

    Staðfestingargjald fyrir hvern farþega eru krónur 50.000 kr. eða samtals 100.000 kr. fyrir hjón/par.


    Eftir að ferð hefur verið bókuð er sendur greiðsluseðill í heimabanka fyrir staðfestingargjaldi ferðar. 


    Hægt er að greiða ferð að fullu ásamt staðfestingargjaldi sé þess óskað, einn greiðsluseðill er þá sendur í heimabanka þess sem bókar ferðina fyrir heildarverði ferðar.


    Vinsamlegast athugið að staðfestingargjald fæst ekki endurgreitt hætti farþegi sjálfur við ferðina. 


    Hætti ferðaskrifstofan við ferðina fæst staðfestingargjald endurgreitt.

Skrá mig/okkur á biðlista

Athugið að uppselt er í ferð Atlantis Travel til Edinborgar 2026 frá Keflavík/Akureyri. Hafir þú áhuga á ferðinni hvetjum við þig til að skrá þig á biðlista hér að neðan.

Contact Us