BRÆÐRAFERÐIR

Frímúrarabræður hafa í gegnum árin verið iðnir við að heimsækja stúkur á erlendri grundu til að kynnast og upplifa ólíka fundarsiði, venjur og kynnast annarri sögu starfsins en er hérna heima.


Fram til þessa hafa flestar stúkur farið þá leið að fá dugmikla bræður til að mynda ferðanefndir til að sjá um væntanlega ferð og hefur sú vinna bæði kallað á tíma og ekki síður vinnu þeirra bræðra þegar í ferðina er farið en eðli málsins skv. hafa systur og makar þessara bræðra ekki fengið að njóta til jafns við aðra þar sem þeirra eiginmenn eru í "vinnuferð" fremur en sem almennir þátttakendur.


Þá skiptir það einnig miklu máli að slíkar ferðir njóta ekki sömu tryggingarverndar eins og almennt er þegar ferðir eru keyptar sem pakkaferðir í gegnum ferðaskrifstofur, en Bræðraferðir starfa skv. leyfisbréfi 202608.


Og einmitt vegna þessa og til að halda í heiðri því verklagi sem æskilegt er að sé til staðar þegar kemur að samskiptum við erlendar stúkur, útgáfu leyfisbréfa frá stjórnstofu reglunnar hér heima og margs annars sem sérstaklega lýtur að ferð frímúrarabræðra þá ákvað ég að bjóða fram mína starfskrafta til að aðstoða við uppsetningu ferða, skipulag þeirra og utanumhald almennt í samstarfi við ferðanefndir sem og Stólmeistara hverju sinni.


Bræðraferðir hafa á liðnum árum komið að ferðum fyrir bræður í Akri, Sindra, Eddu, Gimli, Hugin, Heklu, Glitni og ferðir verið farnar til Osló, Kaupmannahafnar, Stokkhólms, London, Þýskalands og Finnlands.


Auk þessara ferða hafa Bræðraferðir haldið úti og skipulagt vinsæla sérferð til sögueyjunnar Möltu en á árinu 2027 er einmitt verið að undirbúa ferð sem mun vera aðlöguð sérstaklega af þeirri staðreynd að Frímúrararareglan á Íslandi fagnar þá 75 ára afmæli það árið, en þessi ferð verður kynnt betur hér á vefsíðunni fljótlega.


Það eru forréttindi að fá að koma að undirbúningi ferða fyrir alla mína góðu bræður og er það von mín að ég eigi eftir að njóta þess að aðstoða ykkur alla um ókomin ár í komandi ferðum ykkar og ykkar stúka erlendis.

"Victoria Mea In Deo Est"

Egill Örn Arnarson Hansen

OPIÐ FYRIR SKRÁNINGU

ÞJÓNUSTA Í BOÐI

FLUG


Skipuleggjum flug fyrir stærri og minni hópa bræðra og systra, bæði í áætlunar- sem og leiguflugi.

HÓTEL


Við sjáum um að finna góð hótel fyrir hópa þar sem ferðast er til, með það að leiðarljósi að þau séu nærri erlendum stúkuhúsum sem eru heimsótt í ferðinni.

VEFSÍÐA


Við setjum upp sérstaka upplýsingavefsíðu fyrir hverja stúkuferð þar sem allar upplýsingar eru gerðar aðgengilegar. Skráning í ferð fer fram á sömu upplýsingasíðu.

GALA OG VEISLUKVÖLD


Við setjum saman gala-/veislukvöld fyrir ykkar stúku, finnum veislusal, sjáum um veislumatinn, skemmtiatriði, akstur og allt annað sem kvöldinu tengist.

SYSTUR


Þegar bræður sækja fund skipuleggjum við sameiginlegt kvöld með kvöldverð og/eða annarri dagskrá fyrir systur.

FARARSTJÓRN


Íslensk fararstjórn í höndum góðra bræðra.

Upplifun bræðra sem hafa ferðast með Bræðraferðum

- í þeirra eigin orðum

Ummæli.

Stúka - Ferð 202?

Nafn viðmælanda

Ummæli.

- Ferð 202?

Nafn viðmælanda

BRÆÐRAFERÐA TEYMIÐ

JÓN ÞORSTEINN SIGURÐSSON

EGILL ÖRN ARNARSON HANSEN

GYRÐIR ÖRN EGILSSON

HAFA SAMBAND

Contact Us