ÚTSKRIFTARFERÐIR

2027
Við hjá Atlantis Travel höfum 25 ára reynslu af að setja saman magnaðar útskriftaferðir fyrir ungt fólk í leit að spennandi og framandi ferðum til að fagna þessum áfanga og skapa ógleymanlegar minningar. Ykkar draumur getur verið sólríkar strendur, fjörugt næturlíf, framandi upplifanir eða bara góðar stundir í góðra vina hópi - þetta er ykkar ferð.
Okkar markmið er einfalt - að hjálpa ykkur að búa til ógleymanlega útskriftarferð.
HVAÐ ER INNIFALIÐ Í FERÐINNI?
Við sjáum um allt frá því að lagt er af stað frá flugvellinum á Íslandi og þar til komið er á flugvöll á heimleiðinni. Við útfærum ferðina sem hentar ykkar hóp, þið þurfið bara að mæta og fagna útskriftinni - við sjáum um rest.

FLUG
Við notum bæði leiguflugvélar og áætlunarflug til að koma okkar hópum á áfangastað. Endanleg útfærsla ræðst meðal annars af stærð hóps og hvenær ferðin er plönuð.

HÓTEL
Við bjóðum upp á nokkra valmöguleika, allt frá eingöngu hótelherbergi og morgunmat yfir í allt innifalið. Finnum það sem hentar ykkar hóp best.

AFÞREYING
Við bjóðum upp á catamaran bátsferð fyrir hópa þar sem hægt er að vera ein með bátinn. Einnig er hægt að bæta við aðgangi að vatna-/skemmtigörðum eins og Waterworld.
Ef þið hafið hugmyndir getum við skipulagt þær með ykkur.

ÍSLENSK FARARSTJÓRN
Fararstjórar okkar hafa öll reynslu af því að vinna með útskriftarhópum frá Íslandi til fjölda áfangastaða.
VIÐ MÆLUM MEÐ
LLORET DEL MAR Á COSTA BRAVA

Starfsfólk Atlantis Travel býr yfir 25 ára reynslu af því að setja saman eftirminnilegar útskriftarferðir, sérsniðnar að hverjum hópi og því sem þið viljið fá út úr ferðinni. Hvort sem draumurinn er sólríkar strendur, fjörugt næturlíf, spennandi afþreying, skoðunarferðir eða að eiga rólega daga með vinahópnum, hjálpum við ykkur að búa til ferð sem passar ykkur.
Markmiðið okkar er einfalt - að gera útskriftarferðina ykkar ógleymanlega og ótrúlega skemmtilega. Við sjáum um skipulagningu og utanumhald frá upphafi til enda. Okkar markmið er einfalt - að hjálpa ykkur að búa til ógleymanlega útskriftarferð.
Þið þurfið bara að sjá um stemninguna og njóta ferðarinnar.
hvað er alltaf innifalið?
Engir tveir hópar eru eins og þess vegna þurfa engar tvær útskriftarferðir að vera eins. Við getum haft eins mikið eða eins lítið innifalið í ferðinni og hentar ykkar hópi. Þið veljið hvers konar ferð þið viljið og við hjálpum ykkur að setja saman pakkann. Grunnpakkinn okkar er alltaf að fara að vera þessi fjögur atriði hér að neðan, síðan er hægt að bæta við og útfæra ferðina betur.
Flug báðar leiðir
Hótel erlendis
Rúta til og frá flugvelli ytra
Íslensk og reynd fararstjórn
Við getum bætt við upplifunum eftir áhuga og budgeti hópsins
Skoðunarferðum
Siglingum
Aðgang í vatna- og skemmtigarða
Hópefli
Go Kart
Námskeið
Lifandi tónlistaratriði
.... og svo mörgu fleira
Þið ákveðið hvernig útskriftarferðin lítur út og við setjum hana saman
Útskriftarferðin ykkar getur verið til Spánar, Grikklands, Ítalíu, Portúgals eða á fjarlægari slóðir eins og Mexíkó.
Við getum skipulagt ferðina ykkar nánast hvert sem er í heiminum, allt eftir áhuga, óskum og væntingum hópsins. Endalausir möguleikar - Ykkar val.
Þú getur fyllt út skráningaformið hér að neðan og við höfum samband við útskriftarhópinn þinn. Þú þarft ekki að vera í nefndinni til að hafa samband, við þurfum bara tengiliðsupplýsingar og við höfum samband við hópinn.
Contact Us
Takk fyrir að hafa samband. Við munum hafa samband við uppgefinn tengilið eins fljótt og hægt er.
Úps - eitthvað hefur farið úrskeiðis.
Vinsamlegast sendu tölvupóst á info@atlantistravel.is og við höfum samband eins fljótt og auðið er.
