Fyrirtækja og hópaþjónusta

Við sjáum um ferðina -

þú nýtur hennar með hópnum

Atlantis Travel skipuleggur og framkvæmir ferðir fyrir hópa frá Íslandi - árshátíðarferðir, hvataferðir, ráðstefnuferðir, íþróttaferðir og allt þar á milli fyrir hópa, samtök, félög, fyrirtæki og alla aðra.

Hvernig getum við aðstoðað?

Flestir sem hafa samband við okkur eru ekki ferðaskipuleggjendur. Þeir eru starfsmenn í starfsmannafélagi, stjórnarmenn í íþróttafélagi eða skrifstofustjórar hjá fyrirtæki sem fengu verkefnið í fangið - ofan á fulla vinnu.


...og þá fyrst byrjar ballið - flugleit, hótelsamanburður, hver borgar hvað, hver deilir herbergi með hverjum, hvað ef einhver hættir við eða einhver bætist við, hvernig virka tryggingarnar fyrir einstaklinga eða hópinn og allt í einu ert þú í persónulegri ábyrgð fyrir ferð fyrir hundrað manns. Það er erfitt að slaka á og njóta ferðarinnar samhliða öllu þessu.

- það er nákvæmlega þarna sem við komum inn.


Þú segir okkur á vegum hvers hópurinn er, hversu margir eru að fara, hvenær ferðin skal vera farin, hverjar væntingar og óskir hópsins séu og hvaða verðhugmynd þið hafið séð fyrir ykkur. Við sjáum um afganginn alla leið frá fyrstu fyrirspurn þar til síðasti farþegi er kominn heim.

Við tökum að okkur að setja saman og skipuleggja ferðina ykkar frá upphafi og til heimkomu.

Fyrir hverja við vinnum

Árshátíðarferðir

Árshátíðin út fyrir landsteinana? Við sjáum um flugið, hótelið, salinn, mat/drykk og skemmtun - við skipuleggjum og þið njótið.

Hvata- og starfsmannaferðir

Kannski er ferðin umbun fyrir gott ár? Ferð til að hrista saman hópinn og efla starfsandann?


Við skipuleggjum ferðina sem hentar þínum hóp.

Félög, kóra & klúbba

Saumaklúbbar, kórar, félagasamtök og vinahópar. Sami undirbúningur, sama utanumhald - óháð fjölda.

Ráðstefnu- og vinnuferðir

Á þinn hópur erindi á ráðstefnu, sýningu eða fund erlendis getum við aðstoðað. Við sjáum um flugið, gistinguna, aksturinn og annað sem hentar ykkar dagskrá.

Hvað er innifalið í þjónustunni

Áður en lagt er af stað

Tillaga að áfangastað og dagskrá, sniðin að tilefni og verðbili

Flug fyrir hópinn og sætaskipan

Hótel, herbergjaskipan og sérþarfir

Verðtilboð á mann með skýrri sundurliðun — engar faldar upphæðir

Utanumhald um farþegalista, vegabréfsupplýsingar og breytingar

Greiðsluumsjón - Hver borgar hvað og hvenær

Upplýsingapóstur og ferðaáætlun til allra þátttakenda

Á áfangastað

Rúta frá og á flugvöll — enginn bíður í röð eftir leigubíl

Fararstjóri með hópnum ef óskað er

Hópamatur og borðapantanir

Salir, veislur og skemmtiatriði

Afþreying og skoðunarferðir

Akstur milli staða á meðan á dvöl stendur

Ef eitthvað kemur upp á

Neyðarnúmer opið allan sólarhringinn meðan á ferð stendur

Aðstoð ef farangur tapast, flugi seinkar eða veikindi koma upp

Breytingar á farþegalista eftir að bókun er staðfest

Öll ferðin er pakkaferð — þið eruð varin skv. lögum nr. 95/2018

Íslenskumælandi tengiliður, ekki þjónustuver í öðru tímabelti

Greiðslur

Þú átt ekki að þurfa að elta fólk með greiðslur og standa í stappi við hópinn

- við tökum þetta að okkur.


Erfiðasti hluti hópferðar er sjaldnast ferðin sjálf.


Hann er hundrað manns, hundrað millifærslur, fimm sem gleyma og einn sem hættir við viku fyrir brottför -

... og einhver situr uppi með aðra vinnu til viðbótar við dagvinnuna.


Hvernig er hægt að haga greiðslufyrirkomulagi?

Fyrirtækið greiðir

Einn reikningur á kennitölu fyrirtækisins. Ein greiðsla, eitt bókhaldsfærslunúmer, ekkert vesen.

Þátttakendur greiða sjálfir

Hver og einn greiðir sitt beint til okkar. Þú sérð yfirlit yfir hverjir hafa greitt og hverjir ekki - en þú þarft ekki að hringja í neinn.

Skipt greiðsla

Starfsmannafélagið greiðir sinn hluta og starfsmaðurinn afganginn. Algengasta leiðin - og við höldum utan um báða hlutana.

Lokaklausa

Greiðsluáætlun er skýr: staðfestingargjald við bókun, lokagreiðsla á ákveðinni dagsetningu. Þú veist alltaf hvar þú stendur.

Ferlið

Fyrirspurn

Þú fyllir út formið eða hringir. Við þurfum bara grófa mynd: fjölda, tímabil og tilefni.

Tillaga og verð

Við sendum tillögu að áfangastað og ferð eins fljótt og auðið er.

Staðfesting

Þið samþykkið, við bókum. Staðfestingargjald greitt og dagsetningar tryggðar.

Undirbúningur

Við söfnum farþegalista, göngum frá herbergjaskipan og sendum ferðaáætlun á alla þátttakendur.

Ferðin

Þið farið og eigið frábæra og eftirminnilega ferð með ykkar fólki. Við sjáum um afganginn.

Fylltu út formið hér fyrir neðan og við höfum samband