EGILSSTAÐIR TIL RIGA

AÐVENTUFERÐ

4. Desember - 7. Desember 2026

Við Eystrasaltið situr Riga, höfuðborg Lettlands - heillandi borg með áhugaverða sögu og ríkan persónuleika. Yfir jólahátíðirnar umbreytist hún í sannkallaðan ævintýraheim. Gamli bærinn er upplýstur upp með litríkum jólaseríum og fullur af jólamarköðum, angan af upphituðu kryddvíni og lífleg jólatónlist setja tóninn.


Aðventuferð til Riga er hiklaust ein allra besta leiðin til að hressa upp á jólaandann fyrir hátíðirnar!

Upplýsingar & Verð

  • Hvað kostar ferðin?

    Radisson Blu Latvija Hotel 4★


    Verð fyrir Standard einstaklingsherbergi | 179.200 kr.


    Verð per gest í tveggja manna Standard Double/Twin herbergi | 167.300 kr.


    Twin = Tvö Rúm | Double = Tvíbreitt Rúm | Athugið að uppgefin verð eru per mann.


    Pullman Riga Old Town Hotel 4-5★


    Verð fyrir Standard einstaklingsherbergi | 187.450 kr.


    Verð per gest í tveggja manna Standard Double/Twin herbergi | 169.800 kr.


    Twin = Tvö Rúm | Double = Tvíbreitt Rúm | Athugið að uppgefin verð eru per mann.

  • Hvað er innifalið?

    Flug ásamt öllum sköttum og gjöldum í beinu flugi frá Egilsstöðum til Riga og heim aftur.

    • Ferðataska og handfarangur. 
    • Léttar veitingar til sölu um borð.

    Rúta til og frá flugvelli erlendis.


    Valið hótel í þrjár nætur ásamt morgunverði


    Íslensk fararstjórn.

  • Staðfestingargjald

    Staðfestingargjald fyrir hvern farþega eru krónur 50.000 kr. eða samtals 100.000 kr. fyrir hjón/par.


    Eftir að ferð hefur verið bókuð er sendur greiðsluseðill í heimabanka fyrir staðfestingargjaldi ferðar. 


    Hægt er að greiða ferð að fullu ásamt staðfestingargjaldi sé þess óskað, einn greiðsluseðill er þá sendur í heimabanka þess sem bókar ferðina fyrir heildarverði ferðar.


    Vinsamlegast athugið að staðfestingargjald fæst ekki endurgreitt hætti farþegi sjálfur við ferðina. 


    Hætti ferðaskrifstofan við ferðina fæst staðfestingargjald endurgreitt.

Hótelin

Pullman Riga Old Town 4★

Pullman Riga Old Town hótelið, sem var gert upp í fyrra, er staðsett í hjarta gamla borgarhlutans í Riga. Hótelið býður meðal annars upp á vandað SPA með 19m langroi sundlaug, sauna og mögnuðu útsýni frá sjöundu hæð.


Á hótelinu er einnig að finna Harper Woolf Restaurant, metnaðarfullan og notalegan veitingastað sem leggur mikið upp úr spennandi réttum sem segja sögu með ferðalagi fyrir bragðlaukana.


"At Pullman Riga, heritage and innovation coexist in harmony. Step into a space shaped by timeless elegance and modern ambition"

- Pawel Panczak, hótelstjóri

Radisson Blu Latvija Conference & Spa Hotel 4★

Radisson Blu Latvija Conference & Spa hótelið er staðsett skammt frá nokkrum helstu kennileitum borgarinnar eins og dómkirkjunni Cathedral of Christ's Nativity og Freedom Monument minnismerkinu auk fjölda annarra.


Hótelið státar einnig af ESPA Riga sem er eitt þekktasta SPA Eystrasaltslandanna og hefur unnið til verðlauna sem slíkt. Heilsindin dreifist milli sex hæða á hótelinu og býr meðal annars yfir 18m langri sundlaug, sauna og glæsilegri líkamsræktaraðstöðu - fyrir þá sem vilja meira dekur en hreyfingu þarf ekki að óttast því í heilsulindinni er fjölbreytt úrval af hinum ýmsu gufum/sauna og laugum/böðum.


Skyline Bar - bar sem ber nafn með rentu enda er hann staðsettur á 26. hæð. Ekki eingöngu er hann margrómaður fyrir notalegt umhverfið og þjónustu heldur einnig óviðjafnanlegt útsýnið yfir borgina.

Skrá mig í ferð

Contact Us