FJÖLNIR

KAUPMANNAHÖFN

5. NÓVEMBER - 8. NÓVEMBER

2026

ALMENNT UM FERÐINA

Fjölnisbræður og systur fara nú í ferð til Kaupmannahafnar.


Flogið er með Icelandair og við komu á flugvöll ytra er rúta sem keyrir okkur á okkar hótel. Farþegar geta breytt heimferðardegi en ekki brottfarardegi. Fargjaldamismunur getur átt við og er þá rukkaður sérstaklega. Óskir um breytta heimferð þarf að senda á Egill Örn. Skv. hópareglum Icelandair er ekki hægt að greiða með punktum og farþegar fá ekki punkta vegna flugsins. Þegar velja á ferðapakka með flugi er valin Ferðapakki 1.


Boðið verður einnig upp á það að bræður og systur geti sjálf séð um flug og bókað ferðina að öðru leyti eingöngu og er þá valin Ferðapakki 2 þegar br. og systur skrá sig í ferðina.


Fjölnis bræður sækja frímúrarafund á I° gráðu og meðan þeir funda eiga systur saman kvöldverð á veitingastaðnum Hugo Brasserie sem er á hótelinu sjálfu. Sjá nánari upplýsingar og verð vegna þessa í ferðalýsingu.


Þá er á dagskrá að heimsækja Frímúrarahúsið ytra með léttum veitingum og ekið með rútu á staðinn en farþegar sjá sjálfir um að koma sér á hótel eftir heimsóknina. Upplýsingar um þetta nánar í ferðalýsingu.


Sameiginlegt Gala kvöld verður haldið í Stamhuset (frímúrarahúsið) með lifandi tónlist, happdrætti og góðum veigum. Rútuakstur fram og tilbaka. Upplýsingar um þetta nánar í ferðalýsingu en kostnaður vegna kvöldsins fyrir utan drykki er innifalin í verði ferðar.


Skráningarform fyrir ferðina má finna neðar á síðunni.

FERÐAKOSTNAÐUR

HVAÐ KOSTAR FERÐIN?

  • FERÐAPAKKI 1 | MEÐ FLUGI & AKSTRI

    Verð fyrir Standard einstaklingsherbergi | 216.570 kr.


    Verð per gest í tveggja manna Standard Double herbergi | 198.347 kr.


    Verð per gest í tveggja manna Standard Twin herbergi | 198.347 kr.


    Verð per gest í tveggja manna Executive Double herbergi | 212.197 kr.


    Twin = Tvö Rúm | Double = Tvíbreitt Rúm | Athugið að uppgefin verð eru per mann.

  • FERÐAPAKKI 2 - ÁN FLUGS & AKSTURS

    Verð fyrir Standard einstaklingsherbergi | 144.887 kr.


    Verð per gest í tveggja manna Standard Double herbergi | 123.310 kr.


    Verð per gest í tveggja manna Standard Twin herbergi | 123.310 kr.


    Twin = Tvö Rúm | Double = Tvíbreitt Rúm | Athugið að uppgefin verð eru per mann.

  • STAÐFESTINGARGJALD

    Staðfestingargjald fyrir hvern farþega eru krónur 50.000 kr. eða samtals 100.000 kr. fyrir hjón/par.


    Greiðsluseðlar vegna staðfestingargjalds verða sendir út síðar.

AÐRAR UPPLÝSINGAR

  • HVAÐ ER INNIFALIÐ?

    Innifalið í Ferðapakka 1

    Flug ásamt öllum sköttum og gjöldum í beinu flugi frá Keflavík til Kaupmannahafnar og heim aftur.

    Rúta til og frá flugvelli ytra.



    Innifalið í öllum Ferðapökkum

    Gisting í Kaupmannahöfn á Phoenix Hotel 4★ í valdri herbergjagerð ásamt morgunverði.

    Akstur á frímúrarafundinn fram og tilbaka.

    Galakvöld án drykkja með akstri fram og tilbaka.

    Íslensk fararstjórn.

  • HVAÐ ER EKKI INNIFALIÐ?

    Bróðurmáltíð og samskot á fundi.


    Galakvöld bræðra og systra.


    Systrakvöldverður.


    Skoðunarferðir.

  • GREIÐSLUFYRIRKOMULAG

    Eftir að ferð hefur verið bókuð er sendur greiðsluseðill í heimabanka fyrir staðfestingargjaldi ferðar. Hægt er að greiða ferð að fullu með staðfestingargjaldi, einn greiðsluseðill er þá sendur í heimabanka þess sem bókar ferðina fyrir heildarverði ferðar.


    Greiðsludreifing stendur þeim til boða sem vilja nýta sér hana. Boðið er upp á vaxtalaus lán sem hægt er að dreifa niður á allt frá 2-6 gjalddaga auk þess sem bræðrum stendur til boða að nýta sér hefðbundna raðgreiðsludreifingu með allt að 36 mánaðarlegum afborgunum.


    Kostnaður við greiðsludreifingu er breytilegur eftir því hvaða útfærsla á greiðsludreifingu er valin. Staðfestingargjaldið sem innt er af hendi við skráningu í ferð kemur til frádráttar upphæðar sem fer í greiðsludreifingu. Athugið að ekki er hægt að skipta staðfestingargjaldi.


    Þeir sem hafa hug á að nýta sér þessa þjónustu eru beðnir um að senda tölvupóst með öllum nauðsynlegum upplýsingum.


    Netfang | braedraferdir@atlantistravel.is

SKRÁ MIG Í FERÐ

Contact Us

FERÐALÝSING

Hér er að finna ferðalýsingu bræðra- og systraferðar Fjölnis til Kaupmannahafnar
  • Dagur 1 | 5. Nóvember

    Ferðin hefst á flugi frá Keflavík til Kaupmannahafnar með Icelandair flugi FI-204 klukkan 07:35 og áætluð lending ytra klukkan 11:45 á staðartíma.


    Athugið - Vinsamlegast gætið þess að mæta tímanlega í innritun fyrir flugið.


    Eftir að hópurinn hefur náð í farangur sinn verðum við sótt af rútum frá VIKINGBUS og keyrð á hótelið okkar Phoenix Copenhagen. Hér er á ferðinni sannkallað lúxus hótel í hjarta borgarinnar.  Símanúmer móttöku hótelsins er +45 3395 9500. Hægt er að finna frekari upplýsingar um hótelið neðar á síðunni.

  • Dagur 2 | 6. Nóvember

    Heimsókn í Frímúrarahúsið sjálft (Stamhuset) og eru allir beðnir um að koma niður í lobbý á hóteli ekki seinna en klukkan 09:15 en áætlað er að hópurinn mæti í húsið klukkan 09:50 þar sem tekið verður á móti okkur af Bjarne Shubert leiðsögumanni og bróður og við fáum að sjá margt og merkilegt. Eftir að skoðunarferðinni lýkur fær hópurinn ljúfar og léttar veitingar áður en hver og einn heldur af stað á eigin vegum úr húsi heim á leið.



    Þátttökuskráning verður gerð sérstaklega rafrænt síðar meir og er kostnaður per þátttakenda 3.200 kr.


    Frímúrarafundur er um kvöldið og hefst hann stundvíslega klukkan 18:00 en Fjölnisbræður taka þá þátt í fundi á 1. gráðu hjá St.Jóh.Stúkunni Absalon. Rútan með alla bræður fer frá hótelinu klukkan 16:00 sirka. 


    Bræður minntir á að taka með sér öll viðeigandi einkenni í ferðina en þurfa ekki að hafa með sér sverð þar sem stúkan ytra mun leggja þau til.


    Bræður athugi að gera þarf ráð fyrir 10 - 20 dönskum krónum í söfnun á meðan fundi stendur sem greitt er með seðlum. Bróðurmáltíðin verður þriggja rétta máltíð og er innifalið í gjaldi eitt glas af víni eða einn bjór eða gosdrykkur. Bróðurmáltíðin kostar 4.000 kr. og er greidd með greiðsluseðli í heimabanka.


    Bróðir Frank Ivanhoe Nielsen, Siðameistari St.Jóh.stúkunnar Absalon tekur þar á móti bræðrum.


    Sérkvöld Systra


    Meðan bræður funda hefur verið skipulagður kvöldverður á veitingastaðnum Hugo Brasserie sem er á hótelinu sjálfu fyrir systur. Þær systur sem geta ekki borðað eitthvað af neðangreindu vegna ofnæmis eða óþols þurfa að láta Egil Örn eða ferðanefnd vita tímanlega með tölvupósti og verða þá gerðar ráðstafanir til þess að breyta fyrir þær. Kvöldverðurinn hefst klukkan 20:00. Kostnaður per systur er krónur 11.912 kr. Drykkir greiðast aukalega.


    Forréttur | Carpaccio dio manzo (þunnar sneiðar af úrvals nautakjöti með salati og parmesan osti)


    Aðalréttur | Medaglioni di vitello al tartufo (kálfakjöt í ríkri trufflu sósu auk kartöflum og grænmeti)


    Eftirréttur | Tiramisú

  • Dagur 3 | 7. Nóvember

    Frjáls dagur í dag fram að þeim tímapunkti að við förum frá hótelinu okkar klukkan 19:00 í rútu aftur niður í Stamhuset þar sem við eigum okkar Gala kvöld saman.


    Klæðnaður er kjólföt og HVÍTT veisluvesti fyrir bræður og þess óskað að systur nýti tækifærið og klæðist kjólum. Bræðrum er heimilt að bera heiðursmerki, stúkumerki og starfsaldursmerki þar sem kvöldverðurinn er í húsi Reglunnar í Danmörku.


    Fordrykkur við komu.


    Forréttur | Humar með hvítlaukssósu (aioli) og smjörsteiktu súrdeigsbrauði.


    Aðalréttur | Nautalund með ristuðum sveppum og piparsósu. Kartöflu smælki með timijan. Grænar baunir með kapers vinaigrette


    Eftirréttur | Súkkulaðimús með karamellusósu, þeyttum rjóma og ferskum berjum


    Tónlistaratriði, happdrætti, ávarp og flr. Þjónustað verður á hvert borð. 


    Hægt er að kaupa drykki á staðnum sem eru skráðir á þjónustukort með nafni matargests sem síðan er gert upp í lok kvölds við starfsfólk. Eru þá afgreiddir drykkir skráðir á hvern og einn þegar þeir eru afgreiddir á borð.


    Gert er ráð fyrir því að kvöld dagskráin endi sirka um miðnættið og þá aftur keyrt heim á hótel. 


    Athugið - Ef um að ræða ofnæmi eða óþol fyrir einhverju sem er á matseðli kvöldsins þá vinsamlegast látið vita með tölvupósti á netfangið braedraferdir@atlantistravel.is

  • Dagur 4 | 8. Nóvember

    Þetta er okkar síðasti dagur. Farþegar minntir á að skila inn herbergislyklum og gera upp sinn kostnað tímanlega og koma töskum og öðru í geymslu hjá hótelinu.


    Farþegum verður skipt upp í tvo hópa sem fara í gönguferð um slóðir Íslendinga í hjarta Kaupmannahafnar og fer fyrri hópurinn af stað klukkan 12:00 og sá síðari klukkan 13:00. Ferðin hefst á Ráðhústorgi og endar við Jónshús sirka tveimur klst. síðar þar sem tekið verður á móti farþegum með drykk og kynningu. Þátttakendur komi sér sjálfir tímanlega á torgið og veiti ég frekari upplýsingar um þetta þegar út er komið.


    Kostnaður per mann er 2.990 kr. sem greitt er með kröfu í heimabanka.


    Flogið heim til Íslands með Icelandair FI-217 frá Kastrup. Brottför frá hótelinu sirka klukkan 18:15 og allir hvattir til að vera tímanlega í anddyri hótelsins. Brottför heimflugsins er skráð klukkan 21:40 og áætluð koma hér heima í Keflavík er klukkan 23:55.

FRÍMÚRARAFUNDUR

FRÍMÚRARAFUNDUR

6. NÓVEMBER

Föstudaginn 6. Nóvember 2025 munu Fjölnisbræður sækja heim St.Jóhannesarstúkuna ABSALON. Fundurinn verður á 1°gráðu en nákvæm fundardagskrá liggur ekki fyrir enn. Stúkan var stofnuð formlega 17. Október 1918 skv. stofnbréfi frá hans hátign Kristján X (Visesto Salomo Vicarius).


Stólmeistari stúkunnar er br. Jens-Anker Godtfredsen.


Netfang stúkunnar er: om.abs@ddfo.dk og símanúmer hennar +45 35 25 01 01. Heimilisfang er Blegdamsvej 23, 2100 Kobenhavn O.


Kjörorð stúkunnar er UNITIS VIRIBUS - Ved forende kræfter (Sameinaðir Kraftar)


Fundurinn hefst klukkan 18:00 stundvíslega en Fjölnisbræður fara með rútu frá hótelinu sirka 17:00 þannig að tími gefist aðeins með bræðrum ytra fyrir fund. Bræður taki með sér öll einkenni að heiman líkt og þeir séu að sækja fund hér heima. Kostnaður við bróðurmáltíð verður birtur síðar af Ferðanefndinni og verða þær upplýsingar uppfærðar á síðunni hér.

HÓTELIÐ

PHOENIX COPENHAGEN 4★

Phoenix Copenhagen hótelið er staðsett í hjarta Kaupmannahafnar milli hinnar tilkomumiklu Amalienborg hallar og hins litríka Nyhavn. Skammt frá hótelinu má finna Marmarakirkjuna | Frederik's Church (260 mtr) Rósenborgargarðinn og Rósenborgarkastalann  (950 mtr), Christianborg höll (1.1 km), Litla hafmeyjan (1,5 km) svo eitthvað sé nefnt. Svæðið er þekkt fyrir metnaðarfulla veitingastaði, fjölbreytt úrval verslana og fágað yfirbragð auk þess sem hótelið er staðsett skammt frá öllum helstu almenningssamgöngum.


Hótelið á sögu sína að rekja aftur til 17 aldar og er arkitektúr þess sóttur í tímabil Lúðvíks 16. Frakkakonugs, með gylltum ljósakrónum, fallegum og efnisríkum gardínum og antík húsgögnum. Sagan er áberandi þegar gengið er inn á marmaragólfið í móttökunni með tilkomumiklum málverkum. Frítt internet er um allt hótel sem gestum stendur til boða að nýta sér óspart.


Þá er á hótelinu að finna veitingastaðinn Restaurant Von Plessen sem státar af einstakri þjónustu og frábærri matseld sem sótt er í franska matarhefð. Einnig er á hótelinu að finna Murdoch´s Books & Ale sem er líflegur veitingastaður og bar sem sækir innblástur sinn til Englands. Ekki slæmt eftir daginn að tylla sér þar niður og panta kaldan mjöð og grípa í létt spjall.


Herbergin okkar á hótelinu eru Standard herbergi og er stærð þeirra 15 - 17 fmtr. Í herberginu er að finna rúm sem er 160 - 180 cm breitt. Loftræsting er á herbergi, sjónvarp á vegg með 36 rásum, öryggishólf, minibar, hárþurrka, valdar baðvörur, Nespresso kaffivél, skrifborð með stól og baðherbergi er sér og bæði sturta og baðkar. Frítt internet er á herbergi og herbergisþjónusta í boði. Þá hafa gestir frían aðgang að líkamsrækt hótelsins.


Einnig eru í boði tíu Executive herbergi fyrir þá sem það vilja.

TENGILIÐIR

Er eitthvað sem er óskýrt?

Smelltu á hnappinn hér fyrir neðan til að senda Bræðraferðum tölvupóst.