Systra & Bræðraferð til Möltu 2026

387.900kr.

  • ABOUT THE BRAND

    Sunglasses from the Adani Exchange collection. A model with shaded lenses and a plastic frame. They have UV 400 protection.

    Content + Care

    - A cover is included. 

    - Frame shape: cat's eyes.

    - 100% Polycarbonate

    Size

    - Temple: 132mm

    - Lens: 139mm x 37mm

    - Bridge: 12mm

    SKU: 0AX4127S

  • SHIPPING & RETURNS

    Shipping

    Free delivery at home or at a relay point with no minimum purchase. To find out more about our delivery conditions, see our FAQ.

    Returns

    Free returns for 30 days  - send back your unwanted items by mail or take them to a store. Get refunded faster with an online return. To return or exchange your items in person for free, return your items to your closest store. 

Einstök sérferð fyrir alla bræður og systur í Frímúrarareglunni á Íslandi til Möltu 18 - 25 Maí 2024. Beint flug frá Keflavík til Valletta með Play

Malta er gríðarlega spennandi fyrir okkur þar sem hún á sér ríka sögulega tengingu við Regluna.

Ríkuleg dagskrá og eftirminnilegt Galakvöld fyrir bræður og systur.

Bæklingur á PDF formi

Malta - Hótelið okkar

Malta - Hótelið okkar

Grand Hotel Excelsior er glæsilegt fimm stjörnu hótel á Möltu í höfuðborginni Valletta. Í Valletta, sem er á heimsminjaskrá UNESCO, má sjá gríðarlegt magn af tilkomumiklum barokk-ariktektúr og snotrum kaffihúsum og fleiri en 25 kirkjum sem bera vitni um aldagamla trúfestu Maltverja, sem eru nánast allir kaþólikkar.

Lesa meira >

Varnargarðar og virki frá sextándu öld umlykja Grand Hotel Excelsior og ólífugarðana sem finna má á sjálfu hótel svæðinu. Hótelið býr yfir þeirri sérstöðu að vera eina fimm stjörnu hótelið á Möltu sem er umvafið sögulegum arkitektúr. Dvöl á hótelinu er einstakt tækifæri til að drekka í sig stórbrotna sögu eyjunnar samhliða því að hvílast í sannkölluðum lúxus. Stórkostlegt útsýni er frá hótelinu og meðal annars hægt að sjá Marsamxett höfnina og Manoel virkið. Marsamxett höfnin er önnur af tveimur náttúrulegum höfnum borgarinnar og er hún ætluð snekkjum, þar er einnig Msida smábátahöfnin. Grand Hotel Excelsior státar af eigin smábátahöfn þar sem gestum býðst að leggja snekkjum sínum. Hin árlega bátasýning eyjarinnar er einmitt haldin í þeirri höfn þar sem hún er afar glæsileg.

Manoel virkið er varnargarður á Manoel eyju sem er skammt frá Valletta, staðsetning eyjunnar gerir henni kleift að stýra innganginum að Marsamxett höfninni. Skurðir og veggir virkisins voru mótaðir úr bergi eyjunnar. Virkið var upphaflega byggt af Mölturiddurunum milli áranna 1723-1755 fyrir tilstilli hins portúgalska stórmeistara reglunnar, António Manoel de Vilhena. Lagt var í miklar endurbætur og viðgerðir á virkinu árið 2010 vegna skemmda sem á því urðu í seinni heimsstyrjöld, sem og af völdum tímans. Virkið hefur til dæmis verið notað sem tökustaður fyrir hina vinsælu Game of Thrones þætti.

Staðsetning hótelsins er frábær hvað varðar aðgengi að flestum ferðamannastöðum á eyjunum. Skammt frá hótelinu er aðal-stoppistöðin fyrir rútur og þaðan er hægt að ferðast til allra bæja og þorpa á eyjunni. Grand Hotel Excelsior býður upp á fjölbreyttar skoðunarferðir fyrir þá gesti sína sem vilja einkaferðir í smærri bílum. Að auki býður hótelið upp á ferðir frá hótelinu að miðbæ Valletta tvisvar á dag.

Grand Hotel Excelsior státar af glæsilegum herbergjum með stórkostlegu útsýni yfir hafið sem og á sundlaugarsvæðið sem erfitt er að finna annars staðar á Möltu. Frítt Wi-Fi er í móttöku hótelsins, sem og öllum almennum svæðum og herbergjum gesta. Herbergi okkar gesta eru standard herbergi og leitast við að öll herbergi séu snúi að sjó eða sundlaugasvæðinu.

La Sacra Infermeria - Veislustaður Galakvöldsins

Þessi 16. aldar bygging var áður sjúkrahús reglu spítalariddara heilags Jóhannesar af Jerúsalem, Ródos og Möltu eða betur þekkt sem Mölturiddarar, en í dag er nefnd Mediterranean Conference Denter og er eitt þekktasta kennileiti Valletta. Og hér í glæstum sölum þessa mikilfenglega virkis munum við njóta Galakvöldsins saman.

Þessi 16. aldar bygging var áður sjúkrahús reglu spítalariddara heilags Jóhannesar af Jerúsalem, Ródos og Möltu eða eins og flestir þekkja sem Mölturiddarar, en í dag er nefnd Mediterranean Conference Denter og er eitt þekktasta kennileiti Valletta. Og hér í glæstum sölum þessa mikilfenglega virkis munum við njóta Galakvöldsins saman.

Stærð byggingarinnar samhliða umbreytingu hennar yfir í ráðstefnumiðstöð árið 1979 gerir hana að einstöku afreki á sviði arkitektúrs. Þær viðgerðir sem hafa átt sér stað á byggingunni hafa verið sérlega vel gerðar enda hlutu þær aðgerðir mikið lof fyrir nærgætnar og nýstárlegar aðferðir við þá vinnu sem leiddi til þess að hún fékk hin eftirsóknarverðu Europa Nostra verðlaun. Byggingin hlaut þau verðlaun fyrir árangursríka viðgerðarvinnu þar sem tókst að sameina hinn aldagamla ariktektúr við tækni nútímans.

La Valette salurinn er aðal veislusalurinn, nefndur í höfuðið á Jean Parisot de Valette sem var Stórmeistari þeirra frá 1557 -1568 en hann stjórnaði vörnum Möltu 1565. Þessi salur var áður þekktur undir nafninu La Sacra Infermeria og var upphaflega byggður af Mölturiddurunum sem sjúkrahús fyrir meðlimi reglunnar og íbúa eyjunnar auk ferðalanga í pílagrímsför eftir að stórmeistari reglunnar Jean de la Cassière lagði það til árið 1574. Byggingin er byggingarlistar-gersemi svo vægt sé til orða tekið, íburðarmikið hvolfþakið spannar heila 155 metra, sem er lengd rýmisins. Loftið er um 11 metra hátt og hvelfingin rétt rúmlega 1ö metrar á breidd. Þetta gerði það að verkum að salurinn var einn sá stærsti í Evrópu á sínum tíma.

Það er vissulega hrífandi tilhugsun að setjast hérna niður í hópi bræðra og systra, njóta ljúffengra veitinga og einstakrar dagskrár, í sama rými þar sem Mölturiddarar fortíðarinnar störfuðu og lifðu.

19:00 - Farið af stað í Gala kvöldverð klukkan stundvíslega frá hótelinu í rútum að Mediterranean Conference Center - La Sacra Infermeria.

Veislu- og dagskrárstjórn er í höndum Snorra Magnússonar Stallara Reglunnar og br. Egils Arnar Arnarsonar Hansen Siðameistara Landsstúkunnar.

Bræður klæðist kjólfötum með hvítu veisluvesti og systur í kjólum en ekki er gerð krafa um síðkjóla. Athugið að skv. reglum þar um er óheimilt að bera Frímúraramerki (stúkumerki, heiðursmerki og önnur slík einkenni Reglunnar á samkomum sem ekki eru á vegum Reglunnar).

Niðurröðun á borð er unnin sérstaklega og brr. hvattir til að senda tölvupóst á br. Jón Þorstein á netfangið nonni.sig@500kallinn.is hafi þeir sérstakar óskir um borðfélaga. Reynt verður til þrautar að mæta öllum óskum um slíkt.

Eftir veisluhöldin er akstur í boði aftur á hótelið og þá áætlað að brottför sé 23.10og komið á hótel um miðnættið. Þeir bræður og systur sem það kjósa geta líkað sleppt akstri aftur á hótel og haldið inn í sjarmerandi og lifandi næturlíf borgarinnar.

Meridiana Wine Estate

Meridiana Wine Estate

Meridiana Wine Estate hefur verið fremst í flokki í vínframleiðslu á Möltu og sinnt hlutverki brautryðjanda hvað það varðar.
Lesa meira >

Meridiana Wine Estate

Meridiana Wine Estate hefur verið fremst í flokki í vínframleiðslu á Möltu og sinnt hlutverki brautryðjanda hvað það varðar. Þrúgurnar sem þau nota eru eingöngu ræktuð í Maltneskum jarðveg og vínin vakið mikla lukku á alþjóðlegum vettvangi. Vínekrurnar eru staðsettar í Ta’ Qali, í hjarta Maltneska landbúnaðarsvæðisins. Þau státa af um 91.000 vínviðum sem voru gróðursett árin 1994 og 1995 og í dag eru framleiddar um 140.000 úrvals vínflöskur árlega.

Hálfsdagsferð þar sem komið verður við í Mosta sem er lítill bær á Möltu þar sem ein þekktasta kirkja eyjunnar er að finna sem er kölluð í dag Kraftaverka kirkjan þar sem í seinni heimsstyrjöld var varpað sprengju á kirkjunar sem síðan sprakk ekki en í kirkjunni voru þá um 1.000 manns, flestir konur og börn. Þá heimsókn á þessa vínekru þar sem í boði verður að smakka og kaupa vín, beint frá bónda. Geta bræður bókað sig í ferðina hér að neðan. Tími ferðar er frá kl 10:00 til 14:00

Verð á einstakling: 12.900

Ferð í boði

24. Maí 2024 milli kl. 10:00 til 14:00

Mdina - The Silent City

Mdina - The Silent City

Mdina, sem gengur undir nafninu The Silent City, situr efst á hæð með útsýni yfir marga af bæjunum umhverfis hana. Þessi smáa borg er óvenjuleg blanda af miðaldar borgarvirki og barokk-byggingarlist.

Forðum daga bjuggu þar aðallega fjölskyldur af aðalsættum og mörg heimilin hér hafa erfst í margar kynslóðir og er búseta í þeim enn tengd við auðæfi. Þessi híbýli eru jafnan gríðarstór að innan en lítilfjörlegir inngangar blekkja augað áður en inn er komið. Gælunafnið fékk borgin sökum hljóðlátra stræta hennar og strangra laga um notkun bifreiða, þessi fjarvera vélarhljóða getur jafnvel gert gestum kleift að ímynda sér að þeir hafi ferðast aftur í tíma.

Inngangurinn að borginni heitir Mdina Gate eða Vilhena Gate. Hliðið var hannað í barokk stíl af hinum franska arkítekt og hernaðarverkfræðing Charles François de Mondion sem tilheyrði reglu Mölturiddaranna. Nafn hliðsins var valið til heiðurs stórmeistara reglunnar, António Manoel de Vilhena.

Innifalið í verði ferðar er aðgangur að dómkirkjunni og hinu glæsilega safni borgarinnar.

Verð: 10.600

Dagsferðir í boði

19. Maí 2024 milli kl. 10:00 til 14:00

21. Maí 2024 milli kl. 10:00 til 14:00

22. Maí 2024 milli kl. 10:00 til 14:00

Malta - Hótelið okkar

Malta - Hótelið okkar

Þessi 16. aldar bygging var áður sjúkrahús reglu spítalariddara heilags Jóhannesar af Jerúsalem, Ródos og Möltu eða betur þekkt sem Mölturiddarar, en í dag er nefnd Mediterranean Conference Denter og er eitt þekktasta kennileiti Valletta. Og hér í glæstum sölum þessa mikilfenglega virkis munum við njóta Galakvöldsins saman.

Lesa meira >

Malta - Hótelið okkar

Grand Hotel Excelsior er glæsilegt fimm stjörnu hótel á Möltu í höfuðborginni Valletta. Í Valletta, sem er á heimsminjaskrá UNESCO, má sjá gríðarlegt magn af tilkomumiklum barokk-ariktektúr og snotrum kaffihúsum og fleiri en 25 kirkjum sem bera vitni um aldagamla trúfestu Maltverja, sem eru nánast allir kaþólikkar.

Varnargarðar og virki frá sextándu öld umlykja Grand Hotel Excelsior og ólífugarðana sem finna má á sjálfu hótel svæðinu. Hótelið býr yfir þeirri sérstöðu að vera eina fimm stjörnu hótelið á Möltu sem er umvafið sögulegum arkitektúr. Dvöl á hótelinu er einstakt tækifæri til að drekka í sig stórbrotna sögu eyjunnar samhliða því að hvílast í sannkölluðum lúxus. Stórkostlegt útsýni er frá hótelinu og meðal annars hægt að sjá Marsamxett höfnina og Manoel virkið. Marsamxett höfnin er önnur af tveimur náttúrulegum höfnum borgarinnar og er hún ætluð snekkjum, þar er einnig Msida smábátahöfnin. Grand Hotel Excelsior státar af eigin smábátahöfn þar sem gestum býðst að leggja snekkjum sínum. Hin árlega bátasýning eyjarinnar er einmitt haldin í þeirri höfn þar sem hún er afar glæsileg.

Manoel virkið er varnargarður á Manoel eyju sem er skammt frá Valletta, staðsetning eyjunnar gerir henni kleift að stýra innganginum að Marsamxett höfninni. Skurðir og veggir virkisins voru mótaðir úr bergi eyjunnar. Virkið var upphaflega byggt af Mölturiddurunum milli áranna 1723-1755 fyrir tilstilli hins portúgalska stórmeistara reglunnar, António Manoel de Vilhena. Lagt var í miklar endurbætur og viðgerðir á virkinu árið 2010 vegna skemmda sem á því urðu í seinni heimsstyrjöld, sem og af völdum tímans. Virkið hefur til dæmis verið notað sem tökustaður fyrir hina vinsælu Game of Thrones þætti.

Staðsetning hótelsins er frábær hvað varðar aðgengi að flestum ferðamannastöðum á eyjunum. Skammt frá hótelinu er aðal-stoppistöðin fyrir rútur og þaðan er hægt að ferðast til allra bæja og þorpa á eyjunni. Grand Hotel Excelsior býður upp á fjölbreyttar skoðunarferðir fyrir þá gesti sína sem vilja einkaferðir í smærri bílum. Að auki býður hótelið upp á ferðir frá hótelinu að miðbæ Valletta tvisvar á dag.

Grand Hotel Excelsior státar af glæsilegum herbergjum með stórkostlegu útsýni yfir hafið sem og á sundlaugarsvæðið sem erfitt er að finna annars staðar á Möltu. Frítt Wi-Fi er í móttöku hótelsins, sem og öllum almennum svæðum og herbergjum gesta. Herbergi okkar gesta eru standard herbergi og leitast við að öll herbergi séu snúi að sjó eða sundlaugasvæðinu.

Vefsíða hótelsins

La Sacra Infermeria - Veislustaður Galakvöldsins

La Sacra Infermeria - Veislustaður Galakvöldsins

Þessi 16. aldar bygging var áður sjúkrahús reglu spítalariddara heilags Jóhannesar af Jerúsalem, Ródos og Möltu eða betur þekkt sem Mölturiddarar, en í dag er nefnd Mediterranean Conference Denter og er eitt þekktasta kennileiti Valletta. Og hér í glæstum sölum þessa mikilfenglega virkis munum við njóta Galakvöldsins saman.

Lesa meira >

La Sacra Infermeria - Veislustaður Galakvöldsins

Þessi 16. aldar bygging var áður sjúkrahús reglu spítalariddara heilags Jóhannesar af Jerúsalem, Ródos og Möltu eða eins og flestir þekkja sem Mölturiddarar, en í dag er nefnd Mediterranean Conference Denter og er eitt þekktasta kennileiti Valletta. Og hér í glæstum sölum þessa mikilfenglega virkis munum við njóta Galakvöldsins saman.

Stærð byggingarinnar samhliða umbreytingu hennar yfir í ráðstefnumiðstöð árið 1979 gerir hana að einstöku afreki á sviði arkitektúrs. Þær viðgerðir sem hafa átt sér stað á byggingunni hafa verið sérlega vel gerðar enda hlutu þær aðgerðir mikið lof fyrir nærgætnar og nýstárlegar aðferðir við þá vinnu sem leiddi til þess að hún fékk hin eftirsóknarverðu  Europa Nostra  verðlaun. Byggingin hlaut þau verðlaun fyrir árangursríka viðgerðarvinnu þar sem tókst að sameina hinn aldagamla ariktektúr við tækni nútímans.

La Valette salurinn er aðal veislusalurinn, nefndur í höfuðið á Jean Parisot de Valette sem var Stórmeistari þeirra frá 1557 -1568 en hann stjórnaði vörnum Möltu 1565. Þessi salur var áður þekktur undir nafninu  La Sacra Infermeria  og var upphaflega byggður af Mölturiddurunum sem sjúkrahús fyrir meðlimi reglunnar og íbúa eyjunnar auk ferðalanga í pílagrímsför eftir að stórmeistari reglunnar Jean de la Cassière lagði það til árið 1574. Byggingin er byggingarlistar-gersemi svo vægt sé til orða tekið, íburðarmikið hvolfþakið spannar heila 155 metra, sem er lengd rýmisins. Loftið er um 11 metra hátt og hvelfingin rétt rúmlega 1ö metrar á breidd. Þetta gerði það að verkum að salurinn var einn sá stærsti í Evrópu á sínum tíma.

Það er vissulega hrífandi tilhugsun að setjast hérna niður í hópi bræðra og systra, njóta ljúffengra veitinga og einstakrar dagskrár, í sama rými þar sem Mölturiddarar fortíðarinnar störfuðu og lifðu.

19:00 - Farið af stað í Gala kvöldverð klukkan stundvíslega frá hótelinu í rútum að Mediterranean Conference Center - La Sacra Infermeria.

Veislu- og dagskrárstjórn er í höndum Snorra Magnússonar Stallara Reglunnar og br. Egils Arnar Arnarsonar Hansen Siðameistara Landsstúkunnar.

Bræður klæðist kjólfötum með hvítu veisluvesti og systur í kjólum en ekki er gerð krafa um síðkjóla. Athugið að skv. reglum þar um er óheimilt að bera Frímúraramerki (stúkumerki, heiðursmerki og önnur slík einkenni Reglunnar á samkomum sem ekki eru á vegum Reglunnar).

Niðurröðun á borð er unnin sérstaklega og brr. hvattir til að senda tölvupóst á br. Jón Þorstein á netfangið  nonni.sig@500kallinn.is  hafi þeir sérstakar óskir um borðfélaga. Reynt verður til þrautar að mæta öllum óskum um slíkt.

Eftir veisluhöldin er akstur í boði aftur á hótelið og þá áætlað að brottför sé 23.10og komið á hótel um miðnættið. Þeir bræður og systur sem það kjósa geta líkað sleppt akstri aftur á hótel og haldið inn í sjarmerandi og lifandi næturlíf borgarinnar.

Meridiana Wine Estate

Meridiana Wine Estate

Meridiana Wine Estate hefur verið fremst í flokki í vínframleiðslu á Möltu og sinnt hlutverki brautryðjanda hvað það varðar.

Lesa meira >

Meridiana Wine Estate

Meridiana Wine Estate hefur verið fremst í flokki í vínframleiðslu á Möltu og sinnt hlutverki brautryðjanda hvað það varðar. Þrúgurnar sem þau nota eru eingöngu ræktuð í Maltneskum jarðveg og vínin vakið mikla lukku á alþjóðlegum vettvangi. Vínekrurnar eru staðsettar í Ta’ Qali, í hjarta Maltneska landbúnaðarsvæðisins. Þau státa af um 91.000 vínviðum sem voru gróðursett árin 1994 og 1995 og í dag eru framleiddar um 140.000 úrvals vínflöskur árlega.

Hálfsdagsferð þar sem komið verður við í Mosta sem er lítill bær á Möltu þar sem ein þekktasta kirkja eyjunnar er að finna sem er kölluð í dag Kraftaverka kirkjan þar sem í seinni heimsstyrjöld var varpað sprengju á kirkjunar sem síðan sprakk ekki en í kirkjunni voru þá um 1.000 manns, flestir konur og börn. Þá heimsókn á þessa vínekru þar sem í boði verður að smakka og kaupa vín, beint frá bónda. Geta bræður bókað sig í ferðina hér að neðan. 

Tími ferðar er frá kl 10:00 til 14:00

Verð á einstakling: 12.900

Ferð í boði

24. Maí 2024 milli kl. 10:00 til 14:00

Mdina - The Silent City

Mdina - The Silent City

Mdina, sem gengur undir nafninu The Silent City, situr efst á hæð með útsýni yfir marga af bæjunum umhverfis hana. Þessi smáa borg er óvenjuleg blanda af miðaldar borgarvirki og barokk-byggingarlist.

Lesa meira >

Mdina - The Silent City

Mdina, sem gengur undir nafninu  The Silent City, situr efst á hæð með útsýni yfir marga af bæjunum umhverfis hana. Þessi smáa borg er óvenjuleg blanda af miðaldar borgarvirki og barokk-byggingarlist.

Forðum daga bjuggu þar aðallega fjölskyldur af aðalsættum og mörg heimilin hér hafa erfst í margar kynslóðir og er búseta í þeim enn tengd við auðæfi. Þessi híbýli eru jafnan gríðarstór að innan en lítilfjörlegir inngangar blekkja augað áður en inn er komið. Gælunafnið fékk borgin sökum hljóðlátra stræta hennar og strangra laga um notkun bifreiða, þessi fjarvera vélarhljóða getur jafnvel gert gestum kleift að ímynda sér að þeir hafi ferðast aftur í tíma.

Inngangurinn að borginni heitir Mdina Gate eða Vilhena Gate. Hliðið var hannað í barokk stíl af hinum franska arkítekt og hernaðarverkfræðing Charles François de Mondion sem tilheyrði reglu Mölturiddaranna. Nafn hliðsins var valið til heiðurs stórmeistara reglunnar, António Manoel de Vilhena.

Innifalið í verði ferðar er aðgangur að dómkirkjunni og hinu glæsilega safni borgarinnar.

Verð: 10.600

Dagsferðir í boði

19. Maí 2024 milli kl. 10:00 til 14:00

21. Maí 2024 milli kl. 10:00 til 14:00

22. Maí 2024 milli kl. 10:00 til 14:00

Valletta - Höfuðborgin á UNESCO heimsminjaskrá

This is a placeholder and won't appear on the live site.
Lesa meira >

Valletta - Höfuðborgin á UNESCO heimsminjaskrá

Valleta,  The Fortress CityCitta Umilissima  eða “borgin sem var byggð af göfugmennum fyrir göfugmenni”, er höfuðborg Möltu og miðstöð verslunar á eyjunum. Borgin er nefnd eftir stofnanda hennar og þekktasta Stórmeistara Mölturiddara, hinum dáða Jean Parisot de la Valette. Þessi stórbrotna virkis-borg reis á bergi Sceberras fjallsins og aðliggjandi skaga fyrir ofan hafnirnar tvær, Marsamxett og Grand Harbour. Bygging borgarinnar hófst árið 1566 og lauk á undraverðum tíma, einungis 15 árum, með tilheyrandi varnarvirkjum, virkisveggjum og dómkirkju. Það sem gerir þetta afrek enn merkilegra er að borgin var byggð með handafli einu og þeim tólum sem til voru á þeim tíma.

Í þessi skoðunarferð um götur og stræti Valletta gefst okkur tækifæri á að upplifa fegurð og sjarma þessarar borgar sem Mölturiddararnir byggðu. Reglan stýrði eyjunum í 268 ár og má víða sjá einstök menningarleg áhrif þeirra í borginni. Við hefjum ferðina á stórfenglegu útsýninu yfir Grand Harbour frá Upper Baracca Gardens. Næsti áfangastaður okkar er dómkirkjan, St. John’s Co-Cathedral þar sem hægt er að sjá og dást að meistaraverkum málarans Caravaggio auk flæmskra veggteppa og kirkjusafnsins sjálfs. Þessi dómkirkja hefur að geyma eitt fallegasta marmaragólf veraldar. Á leið okkar niður Republic Street göngum við meðal annars framhjá Grand Masters’ Palace og St. George’s Square sem var nýlega gert upp. Að því loknu fáum við að upplifa gríðarlega spennandi sýningu í 5D þar sem saga Möltu lifnar við.

Á gönguferð okkar om borgina eru þrjár staðsetningar sem við komum til með að skoða;

Malta 5D  er nýmóðins sýning þar sem umhverfið er virkur hluti af upplifuninni. Saga Möltu er rakin á spennandi hátt á tjaldi í 3D þar sem við sitjum í sætum sem hreyfast, léttur vatnsúði og loftblásarar láta okkur líða eins og við séum stödd utandyra. Þetta er svo sannarlega eftirminnileg upplifun. Í anddyrinu er einnig hægt að skoða listaverk eftir Maltneska listamenn.

The Upper Barracca Gardens  er friðsæll reitur í hjarta borgarinnar, nærri Castille Palace. Frá þessum görðum er frábært útsýni yfir Grand Harbour auk borganna Senglea, Vittoriosa og Kalkara. Þessir garðar eru byggðir ofan á gömlu virki á hæsta punkti Valletta og má rekja sögu þeirra aftur til ársins 1661 þegar að garðurinn var einkagarður Mölturiddaranna.

Það var ekki fyrr en 150 árum síðar sem garðarnir voru opnaðir almenningi og í dag geta gestir dáðst að litadýrð hinnar fjölbreyttu flóru plantna og trjáa sem þar er að finna. Hér eru styttur og minnismerki víðsvegar, meðal annars  Les Gavroches  brons skúlptúrinn sem og stytta tileinkuð Winston Churchill sem á rætur sínar að rekja til Seinni Heimsstyrjaldar en undir hvatningu forsætisráðherrans stóðu eyjan af sér gríðarlega miklar loftárásir og eyðileggingu án þess að missa móðinn eða baráttuanda sinn. Eyjan fékk viðurkenningu Georgs VI konungs snemma í árdaga átakanna sem sæmdi eyjuna Georg Cross.

Daglega koma saman meðlimir Malta Heritage Society í hádeginu klæddir sem breskir stórskotaliðar og skjóta kveðjuskoti.

St. John’s Co-Cathedral  var byggð cirka árið 1570 sem kirkja fyrir Mölturiddarana og er ekki einungis mest heimsótta kirkja Möltu því hún er einnig sú glæsilegasta. Tilkomumikið kirkjuloftið og myndverk, gylltir bogar og verk eftir Mattia Preti eru hluti af glæsilegri arfleið barokk-tímans. Einnig er marmaragólf kirkjunnar þakið stórfenglegum legsteinum til minningar um ýmis mikilmenni Mölturiddaranna sem þar sofa sínum hinsta svefni. Innar í kirkjunni komum við að helsta dýrgrip kirkjunnar, olíumálverkinu  The Beheading of St John the Baptist  eftir meistarann Caravaggio sem er talið hans besta verk og eitt það mikilvægasta í vestrænni listasögu. Caravaggio var í kjölfarið gerður að meðlimi reglunnar en örfáum mánuðum seinna var hann rekinn með skömm úr reglunni þar sem hann hafði gerst brotlegur við lög og átti sá brottrekstur sér stað í fjarveru hans fyrir framan málverkið sem hann hafði skapað fyrir regluna. Við endum heimsókn okkar á safni kirkjunnar þar sem okkur gefst kostur á að skoða silfurbúnað, skreytt ofin veggtjöld og aðrar gersemar.

Grand Harbour

Grand Harbour er önnur af tveimur náttúrulega mótuðum höfnum borgarinnar. Hér eru meðal annars um ~250 ára gömul vöruhús sem stórmeistari Mölturiddaranna, Manuel Pinto da Fonseca, lét byggja. Þessi vöruhús liggja meðfram vatninu og hinum sögufræga hafnarbakka þar sem riddararnir og evrópskir verslunarmenn affermdu vörur sínar. Hér sjáum við einnig Forni Stores frá árinu 1727 sem stórmeistarinn Anton Manuel de Vilhena lét byggja.

Höfnin er einn helsti inngangurinn að Valletta og á sér ríka sögu sem miðstöð verslunar. Í aldanna rás hefur Malta þjónað sem bækistöð, ekki einungis fyrir Mölturiddaranna því eyjan og hafnir hennar spiluðu stórt hlutverk fyrir Breta í fyrri heimsstyrjöld og Vesturveldin í þeirri seinni en án yfirráða yfir eyjunni hefði stríðsrekstur í N-Afríku ekki verið mögulegur fyrir þau. Í dag er hlutverk hafnarinnar töluvert friðsælla en hún tekur á móti yfir hálfri milljón gesta árlega sem koma með skemmtiferðaskipum.

Gozo

Gozo

This is a placeholder and won't appear on the live site.
Lesa meira >

Gozo

Gozo  er töfrandi eyja skammt frá Möltu og munum við sigla til hennar með ferju. Aðkoman er hin glæsilegasta, þegar við siglum inn hafnarmynnið tekur á móti okkur friðsæl höfnin og snotur kirkja sem trónir yfir henni.

Eyjan er um 67 km² að stærð og þar búa rétt um 34.000 manns. Gozo er þekkt fyrir afslappað andrúmsloft og margir heimamenn lýsa henni á þann veg að hún sé eins og Malta var á árum áður. Margir vilja meina að tíminn líði hægar á Gozo en annarsstaðar í heiminum.

Sjarmi eyjunnar er margþættur - gróskumikið landslagið teygir sig um eyjuna alla og bæði landbúnaður og fiskveiðar spila stórt hlutverk í daglegu lífi eyjaskeggja. Saga eyjunnar er hluta til goðsagnakennd, talið er að eyjan gæti verið hin dularfulla en friðsæla Calypso úr Ódysseifskviðu Hómers.

Þennan dag fá gestir tækifæri til að upplifa sumar af þekktustu hefðum eyjunnar sem byrjar á bátsferðinni frá Möltu. Okkar fyrsti áfangastaður er Ta Massar vínekran þar sem við smökkum afurðir frá eyjunni og fáum kynningu á framleiðsluferlum vínekrunnar.

Þaðan förum við til Marsalforn þar sem heimamenn verka salt en saga þessa iðnaðar á Gozo nær aftur til tíma Mölturiddaranna. Meðfram Norður-strönd Gozo sjáum við þessi 350 ára gömlu lón teygja sig meðfram strandlengjunni um 3 kílómetra leið. Þetta er ekki einungis áhugaverð sjón því þau eru hluti af menningu eyjunnar og hafa sumar fjölskyldur starfað við saltframleiðsluna í margar kynslóðir.

Á leið okkar þangað munum við einnig skoða  Basilica of the National Shrine of the Blessed Virgin of Ta' Pinu  sem var byggt á milli áranna 1920-1931. Ta Pinu er byggingarlistaverk með meiru, það er tilkomumikið ásýndar að utan og ekki síðra að innan með höggmyndum og glæsilegu handverki úr Maltnesku bergi. Helgistaðurinn var reistur fyrir framan kapelluna sem stóð þar upphaflega en hana átti að rífa árið 1575 að beiðni Pietro Dusina sem kom þangað á vegum Gregory XIII páfa en sagan segir að verkamaðurinn sem tók fyrsta (og eina) höggið hafi handleggsbrotnað við það. Var það túlkað sem fyrirboði um að kapellan ætti ekki að vera rifin og varð hún því sú eina á eyjunni sem var ekki eyðilögð.

Við altari kirkjunnar má enn finna málverkið  Assumption to Heaven of Our Lady  sem sagan segir að hafa talað til kotbóndans Karmni Grima í Júní árið 1883 og varð eftir það þekkt sem helgiskrín tileinkað Maríu Mey og enn þann dag í dag kemur mikill fjöldi fólks í pílagrímsferð hingað.

Fjórtán marmarastyttur liggja upp Ghammar hæðina gagnstætt kirkjunni sem tákna  Via Crucis  - sem sýna þrautagöngu Jesú Krists er hann gekk upp Calvary fjall til krossfestingar sinnar.

The Azure Window  eða  Dwejra Window  var 28 metra hár náttúrulegur bogi úr bergi sem hafði staðist tímans tönn þar til 2017 þegar að hann brotnaði í stormi. Við munum staldra við þar og kynna okkur Dwejra flóann og aðliggjandi svæði sem er sannkallaður griðastaður stórbrotinnar náttúru.

Boginn hafði komið við í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum á borð við kvikmyndina The Count of Monte Cristo og þættina Game of Thrones áður en hann skemmdist í storminum og var það gríðarlegur missir fyrir Maltverja.

Þrátt fyrir að boginn hafi sundrast þá er hann enn mjög vinsæll áfangastaður fyrir ferðamenn. Hér finnum við einnig  The Blue Hole  sem er náttúrulega mótað lón við sjóinn og tengist honum í gegnum neðanjarðargöng. Þetta er einn vinsælasti áfangastaðurinn í Evrópu fyrir kafara þar sem fegurðin undir yfirborðinu er óviðjafnanleg.

The Inland Sea  er smár einangraður flói við Dwejra sem tengist sjónum í gegnum 80 metra löng náttúruleg göng en dýptin er allt frá 6 metrum í 25 metra þegar komið er út að sjónum. Það er ótrúlega fallegt sjónarspil þegar sólin skellur á djúpbláu hafinu sem lifir í minningunni þegar heim er komið.

Verð á einstakling: 22.900

Dagsferðir í boði:

19. Maí 2024 milli kl. 08:00 og 18:00

21. Maí 2024 milli kl. 08:00 og 18:00

22. Maí 2024 milli kl. 08:00 og 18:00

Matseðill - Möltu